Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Litlar dúllur

Bloggarar

Oft vinnst sigur í seinni ferð.Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Samkvæmt dagatalinu þá er sumarið gengið í garð. Veðrið er samt sem áður ekkert að gefa það til kynna. Farfuglarnir aftur á móti gera það sem og ferðamennirnir. Túristarnir eru að koma æ fyrr og fleiri. Það er margt á Íslandi sem erlendir ferðamenn verða að varast ... þá sérstaklega umferðin og íslenskir vegir. Því er það eins gott að á youtube er búið að gera langt og leiðinlegt heimildarmyndband fyrir ferðamenn. Fjallar myndbandið um það hvernig eigi að aka á íslenskum vegum, hvað þarf að varast og hvað þarf að vera búið að gera áður en lagt er í hannSvalur. Þetta er myndbandið. Þannig að ef þið eigið erlenda vini sem eru að hugsa um að koma hingað í heimsókn, akandi, þá endilega sendið þeim þessa slóð. HahahaHlæjandi

 

Langa helgarfríið er senn á enda og ætla ég að njóta seinasta dagsins til hins ýtrasta. Stórfjölskyldan á Hlíðartúninu ætlar að skella sér saman í fermingaveislu til náfrænda okkar. Það verður heldur betur gaman að skella sér þangað og hitta vopnfirska ættingja sem maður sér allt of sjaldan. Ég ætla auðvitað að éta á mig gat af kræsingum eins og sæmir í hverri fermingarveislu.Ullandi

 

Ég varð fyrir vissum vonbrigðum með sjálfa mig þessa helgina. Ég ætlaði að gera dálítið sem ég kom mér ekki í, verður það því að bíða betri tíma. Hver veit nema ég drullist til að gera það næst þegar færi gefst til þess. Það er víst frí næstkomandi fimmtudag, nýti mér hann þá vel til hinna ýmissa framkvæmda. Sibba systir á líka afmæli þá, sem minnir mig á það að ég þarf að kaupa handa henni afmælisgjöf. Já og svo á Bjössi afmæli á föstudeginum. Þetta verður því mikil afmælisvika.

 

En segið mér eitt kæru lesendur. Er það ekki skylda á sunnudögum að vera í náttfötunum fram yfir hádegi? Ég má ekkert fara úr þeim fyrr en eftir þrettán hundruð, ekki satt?Hlæjandi

Sumarið er tíminn...Sædís Ósk Guðmundsdóttir

... þegar hjartað verður grænt.

Jæja nú er sumarið víst komið, þó ekki í bókstaflegri merkingu. Engin sól úti ídag, þó hlýtt og stillt. Mikið um að vera í bænum, krakkar á fullu hoppandi í hoppuköstulum, kvennakórskonur á fullu að undirbúa landsmót um helgina. Bærinn verður sem sagt fullur af syngjandi konum alla helgina vúhúHissa.

            Ég er í löngu helgarfríi, heilir fjórir dagar. Byrjunin lofar mjög góðu, ég er búin að klára eitt stykki bók, taka allsherjar vorhreingerningu, fara í blómabúðina, matvörubúðina, já og mjólkurbúðina líka heheGlottandi.

            Ég var að horfa á Skjá einn eitt kvöldið í vikunni, aldrei eins og vant. Haldið þið ekki að kaninn sé búinn að gera raunveruleika þátt um krakka. Þeir (kanarnir) tóku á það ráð að sópa saman nokkrum krökkum frá 8-15 ára aldri og láta þau lifa í draugabæ. Þau eiga að byggja upp samfélag þar sjálf. Vinna og gera allt sjálf, og enginn fullorðinn í grend. Í hverri viku getur einn krakki unnið sér svo inn 20.000 dollara, þ.e.a.s. ef hann er duglegastur af öllum krökkunum að vinna í draugabænum. Í þessum fyrsta þætti sem ég sá brot af, voru tveir krakkar hágrátandi vegna heimþrár. Spennandi þáttur það að horfa á krakka engjast af sorg, og aðra engjast af græðgi til að vinna þennan pening. Hvernig ætli næsti raunveruleikaþáttur verði sem þeim dettur í hug að gera, ég bíð spennt!!Óákveðinn

 

Jæja best að fara að hætta þessu bulli og skella sér út aftur, ætla að kíkja til ömmu og afa með smá blómvönd til þeirra og óska þeim Gleðilegs sumars...ætli ég að taki ekki þá gömlu með mér í það. Glottandi

 

Gleðilegt sumar allir saman.Glottandi

           

Vorið er komið....Sædís Ósk Guðmundsdóttir

... og grundirnar gróa.

 

Morgnarnir ilma af vori, dagarnir ilma af vori og kvöldin ilma af vori. Búið að vera æðislegt veður seinustu daga og útlit er fyrir að svo muni halda áfram. Ég hef aldrei verið mikil sumar og vor manneskja, haust og vetrartíma aðhyllist ég frekar. Þó verð ég að segja að kuldinn síðastliðinn vetur hefur verið að naga mig, því tek ég fagnandi á móti vorinu að þessu sinni. Þrastarsöngur fyllir eyru manns og hlýjar manni í hjartarætur. Nú býð ég eftir fyrstu kríunni í Óslandi (ef þær eru ekki nú þegar komnar) til að vekja mig úr rómantísku þrastarvæli. En sumarið kemur ekki til mín fyrr en ég heyri “söng” hrossagauksins. Ég veit ekki um neitt betra en að vakna við hans “söng”, liggjandi upp í rúmi, í sumarbústaðnum hjá afa og ömmu upp í Lóni.

           

En úr fuglasöng yfir í Eurovision söng. Eruð þið búin að sjá myndbandið við framlag íslenska Eurovision lagsins? Þetta er nokkuð skondið. Gerist allavega ekki verra en myndbandið og framlag okkar í fyrra. Bind samt ekki miklar vonir til þess að við komumst úr forkeppninni... En þessi keppni kallar alltaf á góða ástæðu til að hittast í góðra vina hópi og skemmta sér saman, þá aðallega til að kitla hláturtaugarnar. Myndbandið er hér.

Er maður ruglaður eða hvað!?!Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Hvern andskotann er ég að gera í kennarastarfinu??? Sjáið þið þessa grein á mbl.is Ég get nú alveg sagt ykkur það að þetta eru ekki tölurnar sem ég var að sjá árið 2007 á mánuði, svoooo laaaaangt í frááááá!!! Fýldur Spurning um að senda inn uppsagnarbréfið í dag eða á morgun.

PPTSædís Ósk Guðmundsdóttir

Hversu mikið þarf manni að leiðast á föstudagskvöldi til að fara að horfa á PPT (Profesional poker tour) á Skjá einum. Er nú aðallega að hlæja að flottu sólgleraugunum sem allir spilarar eru með á nefinu. HlæjandiÉg hef ekki verið ein heima hjá mér á föstudagskvöldi síðan ég veit ekki hvenær, veit því ekkert hvað ég á að gera af mér... búin að taka allsherjar hreingerningu á sjálfri mér (beutynightGlottandi), búin að lesa, horfa á tv og vesenast á netinu. Enda nú á að horfa á póker, gæti svo sem verið verra, gæti verið að taka maraþon á Leiðarljósi hehe.Brosandi

            Ég fór á Rocky horror í gær. Þessi sýning var æðisleg og vil ég hvetja alla til að fara og sjá hana. Alveg rosalega gaman að sjá alla þessa hæfileikaríku listamenn sem við eigum hér á Hornafirði, leikara sem og tónlistarmenn. Hér er umfjöllun um sýninguna, mjög góðir dómar á ferð hjá honum Sigga Mar.

            Best að leggja allt undir og halda áfram að horfa á pókerinnSvalur.

Rocky HorrorSædís Ósk Guðmundsdóttir

Ég er að fara út og borða og á leiksýningu á eftir. Þetta er bara eins og maður sé í menningarferð í höfuðborginniSvalur. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu í samstarfi við leikfélagið Lopa eru að frumsýna Rocky Horror í kvöld. Ég hlakka mikið til, því ekki er eins og maður bregði sér í leikhús á hverjum degi. Læt ykkur vita í kvöld hvernig sýningin var, já sem og maturinn heheGlottandi. Eins og þið sjáið hér á þessari mynd og umfjöllun er þetta ekkert nema eðal leikfólk á ferð.

Ken leeSædís Ósk Guðmundsdóttir

Guð hvað ég þrái rigninguna. Hélt ég myndi aldrei segja það hér á Hornafirði. Er orðin mjög þreytt á þessum kulda. Hér með panta ég rigningu takk fyrir. Ég er búin að kenna í dag, á bara eftir að taka mat með gríslingunum 28 og nú er ég ekki að koma mér að neinu verki. Hef meira en nóg að gera en vinnusemin er ekki komin í gang. Ég bíst þó við því að dagurinn í dag verði notaður í vinnu, hver veit nema maður drullist líka  út að labba, og versli kannski smá. Æ ég er eitthvað dofin núna, hef bara ekkert að segja... kíkið á þetta ef ykkur langar að hlægja http://www.youtube.com/watch?v=DPkYCYgHjMU Hlæjandi

Dugnaðurinn á einu heimili...Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Jæja ég er byrjuð í skokkhópnum. Rosa gaman eða hitt þó heldur. Haldið þið ekki bara að helvítis beinhimnubólgan hafi tekið sig upp aftur og ekkert smá. Ó nei, ég get varla labbað (kraftgöngu) í 20 mínútur án þess að vera að drepast. Ég hef aldrei fundið svona mikið til, hélt að ég myndi fara að grenja á mánudagGráta. Nú er því setið heima og hvílt sköflungana, þeir kældir með kæligeli og teygt á þeim af og til. Skokkið verður því að sitja aðeins á hakanum þar til ég næ að jafna mig. Fer samt í blakið á mánudags- og fimmtudagskvöldum. Það má ekki sleppa því.Glottandi Vonandi eftir helgi get ég svo skokkað af mér vitið. En þar sem ég fór ekki út í göngu í dag ákvað ég að vera dugleg hér heima. Ég skil ekki hvernig ein manneskja getur draslað svona mikið til, ég er bara snillingurÓákveðinn. Ég tók því svefnherbergið algjörlega í gegn, skipti á rúmfötum, þurrkaði af, moppaði og svo tók ég fataskápinn líka í gegn, ekki veitti af. Setti í eina vél, tók svo alla stofuna líka í gegn, moppaði og þurrkaði af þar líka. Eldaði mér svo hakk og spagettí eins og alvöru húsmóðir. Borðaði matinn minn eins og góð stúlka á alltaf að gera, vaskaði upp og tók úr vélinni. Sit nú upp í sófa og ætla að horfa á imbann í allt kvöld, lesa fram á næturbyrjun og sofa vel í nótt. Oooojjj  það er ógeðsleg lykt af þessu kæligeli sem er á sköflungunum á mér... næli mér pottþétt ekki í karlmann með þetta helvíti haha  SvalurUllandi

Sitt lítið af hverju...Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Jæja já kæru lesendur. Haldið þið ekki bara að páskafríið mitt sé að verða búið. Jú jú, einn dagur eftir í sælunni. Kaldur hversdagsleikinn tekur við á morgun. Ég verð nú að viðurkenna það að ég hefði alveg veri til í að hafa þetta frí aðeins lengra. Tíminn flaug í burtu frá mér og ég náði bara að gera helminginn af því sem ég ætlaði að gera. Ég dúndraðist samt til þess nú áðan að gera blessuðu skattaskýrsluna mína, ekki seinna vænna þar sem seinasti skiladagur er á morgun. Nú er tæknin orðin svo mikil að maður gerir þetta allt saman á netinu, þarf bara eitt lykilorð til að komast þar inn. Hvernig í andsk.. halda menn að maður muni þetta blessaða lykilorð þegar maður notar það einu sinni á ári. Íbúðin er því í rúst eftir að ég umturnaði henni til að finna þetta blessaða lykilorð, það fannst eftir langa mæðu, sem betur fer.

            Ég ákvað í gær að fara ekki snemma að sofa og ekki reina að snúa sólahringnum í samt horf, heldur poppaði ég mér popp og horfði á eina bíómynd í flakkaranum, langt fram á nótt. Ég horfði á Gyllta áttavitann, en það er mynd eftir samnefndri bók. Þvílík vonbrigði. Þarna skeit kvikmyndagerðafólkið algjörlega upp á bak. Myndin var ekki í líkindum við bókina, haldið þið ekki að endinum í bókinni hafi bara verið sleppt sem og mörgum öðrum mikilvægum atriðum. Ég þurfti að pína mig til að klára að horfa á þessa mynd. En hafið þið einhvern tíman lesið utan á örbylgjupopppoka? Ég dundaði mér við það á meðan ég píndi mig í gegnum myndina. Þetta er alveg brilljant lesning. Hvaða heilvita ljóska ætti að geta poppað sér popp í örbylgjunni án þessa að brenna sig, fá heita olíu á sig, opna pokann á vitleysum enda, taka ekki plastið utan af pokanum áður en er poppað o.s.frv, o.s.frv. Ég skemmti mér betur yfir popppokanum heldur en bíómyndinni og mæli eindregið með þeirri lesningu. Hlæjandi 

 

P.S ég er búin að setja helling af myndum inn á myndasíðuna mína. Mars 2008.     

Einn góður í leiðindum Páskadags :)Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni.
Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar.

Andinn svaraði: " Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? "

Án þess að hika sagði konan : " Ég óska friðar í Mið-austurlöndum.
Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað."

Andinn leit á kortið og hrópaði : " VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! "Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. "

Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: " Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! "

Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : " Láttu mig sjá þetta
fjandans kort "Hlæjandi
Síða 5 af 7

Prófíll

Klukkan