Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Litlar dúllur

Bloggarar

Ung í anda og elska ţađ! Sćdís Ósk Guđmundsdóttir

Rigningin og rokið hamast á gluggunum hjá mér, eins svart og það er búið að vera á fjármálamörkuðum heimsins síðustu daga. Kertaljós loga og hljómar Cat Stevens eru inni í svefnherberginu hjá mér, heitt eins og undir sænginni hjá mér.

            Fór úr vinnunni rúmlega hálf sex í dag og fór þaðan beint til Sibbu systur þar sem hún bauð mér í mat. Ákvað að hætta ekkert vinnunni þó ég væri komin til hennar heldur vann ég þar til maturinn var kominn á borð. Rúmlega átta kom ég heim og fór liggur við beinustu leið upp í rúm. Þegar veðrið er eins leiðinlegt og það er nú veit ég ekkert betra en að liggja uppi í rúmi undir sæng með góða bók við hönd. Ég hef alltaf verið nokkuð dugleg við lestur. Get ekki hugsað mér að leyfa svefninum að taka völdin á kvöldin fyrr en ég hef lesið í dágóða stund í góðri bók. Á mínu náttborði eru vanalega nútímaskáldsögur. Ég hef verið frekar löt við að glugga í gömlum, góðum klassískum bókmenntum. Um daginn áskotnaðist mér þó nokkuð gott safn af hljóðbókum frá góðum vini. Þar eru nokkrar bækur sem ég hef ekki lesið áður, þar á meðal var heimspekilega skáldsagan Birtingur eftir Voltaire. Mér fannst Birtingur frekar óvenjuleg bók. Hún er í senn fyndin, harmræn, fáránleg, torskilin, hugljúf og óhugnanleg, í raun bók sem fer langt með að fylla skala lýsingarorðanna. Sögð er saga einfeldningsins Birtings sem þráir ekkert heitara en að vinna ástir Kúnígúndar hinnar fögru. Í leit hennar lendir Birtingur í ótal ævintýrum sem fæst hafa Hollywoodenda. Morð, barsmíðar og hvers kyns brestir í mannlegu fari verða á vegi hetjunnar ungu en alltaf sér Birtingur hið góða í gegnum þykka hulu breyskleikans. Í raun mætti segja að hann sé úr-hófi-fram-bjartsýnn, líkt og nafnið ber með sér. Eftir að hafa hlustað á þessa áhugaverðu skáldsögu ákvað ég að vinda kvæðinu í kross og fór að fletta í barna/unglingabók. Ævintýrabækur hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér og þakka ég það uppeldi föður míns. Hann  var og er mikið fyrir ævintýrabækur og kynnti mér fyrir þeim nokkrum á sínum tíma. Til að mynda kynntist ég Hringadróttinssögu á unga aldir, þó til að byrja með í gegnum teiknimyndasögur. Hef ég lesið þær allar auk Hobbitans þó svo að mér hafi fundist þær erfiðar aflesnar á tíma. Nýjustu og vinsælustu ævintýrabækurnar á markaðnum eru bækurnar um galdramanninn Harry Potter. Þessar bækur hafa náð þvílíkum vinsældum og ekki bara hjá ungu kynslóðunum. Allar bækurnar um galdrastrákinn eftir J.K. Rowling hef ég lesið og er nú að lesa þá síðustu. Öll þau jól sem nýjar Potter bækur koma á markað hef ég gefið bróður mínum og á því auðvelt með að nálgast þær. Frá síðustu jólum hefur hann ítrekað minnt mig á að ég eigi eftir að lesa þá síðustu. Sló ég því til um daginn að setja þennan líka doðrant á náttborðið hjá mér. Ég hef ekki getað slitið mig frá henni af spenningi síðan. Nú er að dragast á seinni hlutann hjá mér í lestri hennar og þykir mér það frekar miður. Vitandi af því að endalokin nálgast. Nú hugsa trúlega margir hverslags rugludallur ég sé að liggja yfir barnabókum og fíla þær í tætlur í leiðinni. Þá segi ég við ykkur sem það hugsa.... Ég mun reyna að halda í barnið í mér eins lengi og ég get því ég veit ekki um neitt fallegra en fólk sem er ungt í anda. Hlæjandi

   

Athugasemdir

1
sibba skrifar:
jahá eru mínar bara komanr í hljóðsnældurnar:D en já þá getur þú öfundað mig góða mín því ég er bara búin að lesa fyrstu bókina um hann Harry vin okkar:D er meira að segja ekki alveg viss um að ég hafi náð að klára þá fyrstu :D heheh
Ég segi nú bara hvar værum við ef að bækur væru ekki til ég væri nú dauð úr leiðindum ef að ekki væri hægt að lesa, mér til dæmis finnst rosalega gott bara að liggja og lesa á meðan ég gef litlu dúllunni minni að drekka, enda er ég búin að lesa þó nokkuð margar bækur á þessum 2 og hálfum mánuði síðan ég fékk elskuna í fangið:D
06. október 2008 klukkan 22:56
2
kristín jóns skrifar:
'Við hættum ekki að leika okkur af því að við verðum gömul heldur verðum við gömul ef við hættum að leika okkur'
á þetta ekki við lestur 'barna' bóka líka? Annars er Harry Potter eða Lord of the Rings ekkert barnadót að mínu mati:) og ég hef alltaf rétt fyrir mér.... :)
07. október 2008 klukkan 08:14
3
Erna skrifar:
Takk fyrir, ég er ung í anda og les barnabækur. Finnst þær hin skemmtilegasta lesning. Kveðja Erna (gamla)
07. október 2008 klukkan 18:17
4
Jóna Benný skrifar:
Það er aldeilis að mín hefur farið spekingslega fram úr rúminu núna :)

Ég er löt að lesa því ég tel mér trú um að ég hafi ekki tíma til þess... og ég hef heldur ekki tíma til að fara í ræktina og sund... og þrífa... og læra heima... o.s.frv.
08. október 2008 klukkan 10:12
5
Sćdís skrifar:
Já Jóna Benný ég á þetta til... þegar ég nenni hehe. Annars er ég oftast frekar óspekingsleg hahaha
09. október 2008 klukkan 18:20

Skrifa athugasemd

Prófíll

Klukkan