Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Litlar dúllur

Bloggarar

ÁramótakveðjaSædís Ósk Guðmundsdóttir

Sælir kæru lesendur.
Ég vil bara nota tækifærið og óska ykkur gleðilegs nýs árs og þakka það gamla. Af því tilefni að nýtt ár er að ganga í garð ætla ég að strengja áramótaheit. Eitt af því er að hætta að blogga! Þetta mun því vera seinasta blogg mitt það sem eftir lifir. Ef fólk vill fylgjast með mér getur það hringt í mig eða komið í heimsókn.

Have a nice life CoolKissLaughing

JólamyndirSædís Ósk Guðmundsdóttir

Hér eru komnar inn nokkrar jólamyndir :) http://picasaweb.google.com/saedisog/JL2008#

JólakveðjaSædís Ósk Guðmundsdóttir

Á Þorláksmessu finnst mér í raun jólin komin. Í gær fórum við í skötuveislu til Fúsa frænda og Nónu. Þvílíkar kræsingar voru þar á borðunum fyrir stórfjölskyldu Harðar og Sigrúnar.
Nokkrir tímar í jól. Nú ligg ég upp í sófa í Hlíðartúninu, með fætur upp í lofti. Aðfangadagur byrjaði snemma hjá mér. Ég vaknaði upp við hlátrarsköll og hó hó óp sem hljómuðu ljúft í stigagöngunum hjá mér. Blautir og kaldir jólasveinar voru þar að færa börnunum gjafir.
Eftir að hafa vaknað svona snemma í morgun dreif ég mig í Hlíðartúnið og fékk mér morgunmat með móður minni. Hún var ein vöknuð og var á fullu að bóna gólfin fyrir jólin. Ég benti henni nú á það að enginn myndi taka eftir því hvort hún myndi bóna gólfin eða ekki. Þegar allir voru vaknaðir fengu allir jólasveinagjöf. Góð og skemmtileg hefð sem við hér í Hlíðartúninu höfum tekið upp. Ungu jólasveinarnir fjórir gefa gömlu jólasveinunum tveimur gjafir og þeir gömlu gefa þeim ungu. Hinir ekta jólasveinar eru hættir að koma við í Hlíðartúni 24 eftir að börnin urðu stór.
            Nú er bara legið í leti, lesið og horft á sjónvarp. Enda er maður á blístrinu eftir afmælisveisluna hjá Ástu frænku... og stutt í jólasteikina uss uss uss. Ég býst við því að eiga æðisleg jóla og frábær áramót eins og ár hvert hingað til.

En í lokin vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hlakka til að hitta ykkur öll um hátíðarnar og á nýju ári. Hafið það sem allra, allra best með fjölskyldum ykkar og vinum um hátíðarnar. Kossar og knús á alla línuna.Kiss

Er kreppa?Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Ef skrifað er orðið "Kreppuráð" á leitarvefnum google.is koma upp um 18.900 niðurstöður. Ég hef, eins og margir aðrir, orðið nokkuð vör við hina svokölluðu kreppu á Íslandi. Bæði hefur matarkarfan mín, sem ekki er stór, hækkað í krónum sem og íbúðarleiga mín. Þetta tvennt hefur þó ekki haft gífurlega mikil áhrif á budduna mína þennan mánuðinn sem og seinustu tvo. Það sem hefur haft nokkur áhrif á stærð buddunnar þennan mánuðinn er vísareikningur minn, sem ég fékk nú eftir Bandaríkjaferð mínaTongue out. Ég borgaði hann samviskusamlega en fór svo að velta fyrir mér hvað ég ætti til bragðs að taka þar sem sá mánuður var að ganga í garð sem flestir landsmenn, þar með talin ég, eyðir mestum aurum. Svo að ég geti nú keypt mér eitthvað gott í gogginn yfir hátíðarnar, sem og skroppið út á lífið, klárað að kaupa jólagjafir, afmælisgjöf handa pabba, farið í jólaklippinguna o.fl. þarf ég eitthvað að taka til minna ráða. Nú eru góð ráð dýr. Ég hef því tekið nokkrar ákvarðanir og ætla að deila þeim með ykkur hér.

1. Kaupa engin jólakort. Búa þau sjálf til í publisher og prenta út á A4 blöð sem ég á til og þarf því ekki að kaupa. Þeir sem búa erlendis fá jólatölvupóst frá mér svo ekki þurfi ég að eyða peningum í frímerki.Wink
2. Allar jólagjafir verða pakkaðar inn í gömul dagblöð sem ég hef sankað að mér. Því þarf ég ekki að kaupa jólapappír. Pakkarnir verða skreyttir með greni sem ég stel úr garðinum hjá mömmu og pabba. Þarf ég því ekki að kaupa skraut. Límbandið á ég nú þegar og þarf því ekki að kaupa það.Wink
3. Kaupa enga merkimiða á jólapakkana. Klippa út jólamyndir úr gömlum jólakortum sem ég hef fengið send frá vinum og vandamönnum. Þarf því ekki að kaupa merkimiða.Wink
4. Baka engar smákökur. Þar sem ég er að rembast við að hreyfa mig og losa mig við þau mörgu aukakíló sem ég hef sankað að mér seinustu... ja 20 jól, er ekki ráðlegt að eiga þær til á heimilinu. Ef mikil löngun fyllist yfir mig til að fá smákökur, hoppa ég yfir í Hlíðartúnið þar sem dunkarnir eru fullir. Fólkið þar hefur hvort sem er ekki gott af því að innbyrða þær allar sjálft. Súrmjólkin nægir pabba. Þarf því ekki að kaupa hráefni í smákökur.Wink
5. Öll jólakort sem senda þarf hér innanbæjar verða ekki sett í dreifingu hjá fimleikafélagi Sindra. Læt Dag Snæ bróður koma með mér á rúntinn eitt kvöldið og læt hann hlaupa í hús með kortin fyrir mig. Þarf því ekki að borga fyrir dreifingu jólakorta innanbæjar.Wink
6. Allar flöskur, dósir og gler verður tekið saman í poka og farið með í endurvinnslu og peningur fenginn fyrir. Nú verður ekkert styrkt Sindra eða karlakórinn Jökul.Wink
7. Kaupa engin föt fyrir jólin í Lóninu. Keypti nóg af þeim í Bandaríkjunum. Wink
8. Fara að byrja að drekka sterkt vín. Á nóg af því í vínskápnum. Þarf því ekki að fara að eyða pening í hvítvín.Wink
9. Ef svengd kvelur mig um kvöldmatarleitið og allar núðlur búnar í íbúðinni er gott að fara í heimsókn í Hlíðartúnið, helst á þeim tíma þegar ég veit að mamma er byrjuð að elda. Spyrja hvað sé í matinn og þá er manni undantekningarlaust boðið í mat. Þarf því ekki að eyða pening í kvöldmat. Wink
10. Vera dugleg að borða fría matinn sem ég fæ í hádeginu í skólanum. Ef ég borða nóg þarf ég ekki að borða næst fyrr en í kvöldmatartímanum í Hlíðartúninu. Þarf því ekki að eyða peningum í hádegismat.Wink

Hvernig líst ykkur svo á? Laughing
Enn sem komið er, er ég einungis komin með þessi tíu ráð. Þarf að leggja höfuðið í bleyti.  Ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug endilega látið mig vita. Ég er að vísu ekki tilbúin til að selja mig, eins og ég bíst við að nokkrar tilgátu verði. Uuuu ekki nema ég fái eitthvað ómótstæðilegt boð sem ég get engan veginn hafnað hehehe.Laughing

ÖrbloggSædís Ósk Guðmundsdóttir

  Þetta þýðir ekki lengur... hér kemur örblogg.

Home sweet home!Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Ég er komin heim frá Ameríkunni. Eftir langt og strangt ferðaleg. Minneapolis-New York-Keflavík-Höfn. Allt í einum rykk og tók þessi ferð frá upphafi til enda einn sólahring. Þreyttur ferðalangur byrjaði því á því að leggja sig aðeins í gær þegar heim var komið. Sofnað var klukkan 9 í gærkvöldi og sofið í heila 14 tíma. Fílefld og endurnærð í því dag.

Þessi ferð var rosalega skemmtileg, það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að fara í aðra heimsálfu. Námskeiðið sem við fórum á var rosalega gott og fór í raun fram úr okkar björtustu vonum. Einnig var mjög gaman að fá að sjá Amerískan skóla, skóla sem maður hefur eingöngu séð í bíómyndunum. Kaninn kom mér dálítið á óvart og þá á jákvæðan hátt. Ég held ég hafi aldrei ferðast til annars lands og hitt þar jafn kurteisa og almennilega þjóð. Hvert sem maður fór var boðið góðan dag, spurt hvernig maður hefði það, hvernig dagurinn væri búinn að vera hjá manni o.s.frv., o.s.frv. Þetta er mikil matarþjóð eins og við vitum, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Við vorum að springa alla ferðina, það var ekki fyrr en á leiðinni heim, á milli fluga sem við fundum fyrir svengd í fyrsta skiptið á ferð okkar og var sú svengd vel þegin. Eftir mikið sukk og svínarí, beikon, barbeque, donuts, cakes, coca cola o.s.frv., o.s.frv., verður nú tekið á því. Matarræðið tekið í gegn og skellt sér í ræktina. Ég er búin að skrá mig í Rope Yoga í Sporthöllinni sem og fyrirtækjakeppni í skólanum. Verður nú mætt í sportið 6 sinnum á viku og hart tekið á því.Yell (koma svo) Ég saknaði ekki fréttanna héðan frá klakanum og lét þær algjörlega vera. Í staðin var einbeitt sér að því að versla. Versla!?!Surprised Hugsið því trúlega. Er ekki í lagi með ykkur að versla í þessu ástandi. Hehe það var ástæðan fyrir því að ég las ekki fréttirnar.Tongue out Inn á milli var nefnilega hægt að finna mjög góð verð á fötum og skóm. Bólgnaði því taskan mín nokkuð á þessu viku stoppi. Fór samt ekki yfir vigt. Mall of America var líka þarna bara rétt hjá hótelinu og svo voru hótelskutlur sem fóru á klukkutímafresti frá hótelinu í mollið og var ókeypis fyrir hótelgesti. Það var því ekki fræðilegur möguleiki á því að sleppa því hehe.

P.s. Amerísku almenningsklósettin voru algjör snilld. Því þegar maður stóð upp af því, búin að gera sitt, þá sturtaði það sjálft niður. Þannig að þegar þú varst að girða þig í rólegheitum þá sá það um sig sjálft. Fyrst var ég ekki að fatta þetta .... hvaða.. hvernig... hver gerði þetta hahahaLaughing

P.s.s. Komnar inn myndir frá Ameríkuferðinni

P.s.s.s Over and out.

USA here I come.Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Ég er að fara í bæinn á morgun og til Bandaríkjanna á laugardaginn!! Þarf að segja eitthvað meiraLaughing

Nánar auglýst síðarCool

Ung í anda og elska það! Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Rigningin og rokið hamast á gluggunum hjá mér, eins svart og það er búið að vera á fjármálamörkuðum heimsins síðustu daga. Kertaljós loga og hljómar Cat Stevens eru inni í svefnherberginu hjá mér, heitt eins og undir sænginni hjá mér.

            Fór úr vinnunni rúmlega hálf sex í dag og fór þaðan beint til Sibbu systur þar sem hún bauð mér í mat. Ákvað að hætta ekkert vinnunni þó ég væri komin til hennar heldur vann ég þar til maturinn var kominn á borð. Rúmlega átta kom ég heim og fór liggur við beinustu leið upp í rúm. Þegar veðrið er eins leiðinlegt og það er nú veit ég ekkert betra en að liggja uppi í rúmi undir sæng með góða bók við hönd. Ég hef alltaf verið nokkuð dugleg við lestur. Get ekki hugsað mér að leyfa svefninum að taka völdin á kvöldin fyrr en ég hef lesið í dágóða stund í góðri bók. Á mínu náttborði eru vanalega nútímaskáldsögur. Ég hef verið frekar löt við að glugga í gömlum, góðum klassískum bókmenntum. Um daginn áskotnaðist mér þó nokkuð gott safn af hljóðbókum frá góðum vini. Þar eru nokkrar bækur sem ég hef ekki lesið áður, þar á meðal var heimspekilega skáldsagan Birtingur eftir Voltaire. Mér fannst Birtingur frekar óvenjuleg bók. Hún er í senn fyndin, harmræn, fáránleg, torskilin, hugljúf og óhugnanleg, í raun bók sem fer langt með að fylla skala lýsingarorðanna. Sögð er saga einfeldningsins Birtings sem þráir ekkert heitara en að vinna ástir Kúnígúndar hinnar fögru. Í leit hennar lendir Birtingur í ótal ævintýrum sem fæst hafa Hollywoodenda. Morð, barsmíðar og hvers kyns brestir í mannlegu fari verða á vegi hetjunnar ungu en alltaf sér Birtingur hið góða í gegnum þykka hulu breyskleikans. Í raun mætti segja að hann sé úr-hófi-fram-bjartsýnn, líkt og nafnið ber með sér. Eftir að hafa hlustað á þessa áhugaverðu skáldsögu ákvað ég að vinda kvæðinu í kross og fór að fletta í barna/unglingabók. Ævintýrabækur hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér og þakka ég það uppeldi föður míns. Hann  var og er mikið fyrir ævintýrabækur og kynnti mér fyrir þeim nokkrum á sínum tíma. Til að mynda kynntist ég Hringadróttinssögu á unga aldir, þó til að byrja með í gegnum teiknimyndasögur. Hef ég lesið þær allar auk Hobbitans þó svo að mér hafi fundist þær erfiðar aflesnar á tíma. Nýjustu og vinsælustu ævintýrabækurnar á markaðnum eru bækurnar um galdramanninn Harry Potter. Þessar bækur hafa náð þvílíkum vinsældum og ekki bara hjá ungu kynslóðunum. Allar bækurnar um galdrastrákinn eftir J.K. Rowling hef ég lesið og er nú að lesa þá síðustu. Öll þau jól sem nýjar Potter bækur koma á markað hef ég gefið bróður mínum og á því auðvelt með að nálgast þær. Frá síðustu jólum hefur hann ítrekað minnt mig á að ég eigi eftir að lesa þá síðustu. Sló ég því til um daginn að setja þennan líka doðrant á náttborðið hjá mér. Ég hef ekki getað slitið mig frá henni af spenningi síðan. Nú er að dragast á seinni hlutann hjá mér í lestri hennar og þykir mér það frekar miður. Vitandi af því að endalokin nálgast. Nú hugsa trúlega margir hverslags rugludallur ég sé að liggja yfir barnabókum og fíla þær í tætlur í leiðinni. Þá segi ég við ykkur sem það hugsa.... Ég mun reyna að halda í barnið í mér eins lengi og ég get því ég veit ekki um neitt fallegra en fólk sem er ungt í anda. Hlæjandi

   

Alltaf nóg....Sædís Ósk Guðmundsdóttir

...að gera á þessum bænum. Ég hef bara ekki haft neinn tíma til að blogga þessa síðustu daga. Vonandi fer það nú að breytast hjá mér á næstu dögum og vikum. Þó svo að allar helgar fram á miðjan nóvember séu bókaðar hjá mér. Ég er að fara að skella mér í höfuðborgina á morgun og verð þar eitthvað fram á helgi. Er ekki alveg búin að ákveða hvort ég ætla heima á laugardegi eða sunnudegi. Kemur allt í ljós þegar nær dregur. Ástæða för minnar til Reykjavíkur er námskeið sem ég er að fara á. Þetta námskeið er fyrir meðlimi stýrihópa í Uppeldi til ábyrgðar, sem er ný uppeldisstefna sem við erum að taka upp í Grunnskóla Hornafjarðar. Helgina þar á eftir er mér boðið í brúðkaup Möttu og Hjálmars... og hlakka ég mikið til þess. Parket að spila og veit ég því að tjúttað verður langt fram undir morgun. Helgina þar á eftir fer ég til USA, nánar tiltekið Minneapolis (Mall of America er þar jeeiiii) Þar er ég að fara á námskeið í Uppeldi til ábyrgðar (hefur það heyrst) hjá höfundi stefnunnar, Diane Gossen. Helgina þar eftir verð ég enn í USA, að koma mér heim á leið. Helgina eftir það verður skellt sér á Bítlashowið á Hótelinu í góðra vina hópi. Ég man svo ekki hvað ég er að fara að gera helgina eftir það... en það var eitthvað.

            Fyrir utan öll helgarplönin er auðvitað nóg að gera hjá mér í vinnunni alla virku dagana. Síðan er ég alltaf á leiðinni í blakið, sem ég er ekki enn búin að koma mér í. Ég var einmitt að heyra góðar fréttir í dag þar sem mér var tilkynnt að Sporthöllin sé að fara að opna aftur. Það verður frábært að skella sér þangað aftur, þó Barbara mín verði ekki þar.

 

Jæja ég ætla að láta þetta duga. Þið verðið bara að vera þolinmóð við mig næstu vikurnar þó ég bloggi ekki... hver veit svo, kannski hellist andinn yfir mig.

Bjartari tímar.Sædís Ósk Guðmundsdóttir

Sælt veri fólkið.

 

Já nú er sko heldur betur annað hljóð í minni. Brjálað að gera þó, en jákvæðnin og gleðin hafa skinið úr rassgatinu á mér seinustu tvo daga. Getið velt því fyrir ykkur í smá stund hvernig það lítur út hehe. Hlæjandi

 

Helgin að ganga í garð, ótrúlegt hvað dagarnir eru fljótir að líða. Á morgun ætla ég, Sibba o.fl. að skella okkur í undirbúning fyrir skírn. Því að á laugardaginn verður Birta Ósk skírð í Hliðartúninu. Mikið af skemmtilegu fólki að sunnan ætlar að kíkja á okkur og bíðum við spenntar eftir að hitta þau. Laugardagskvöldið ætlar svo góður hópur að hittast í boði hjá föður Birtu þar sem á að borða saman, spila og sprella. Hver veit nema maður skelli sér síðan á ball á Hótelinu. Langt síðan að maður hefur gert það og tilhlökkunin því nokkuð mikil. Verst er þó það að móðir okkar (móðuramman) verður fjarverandi þegar skírt verður, þar sem hún er við nám á Norðfirði. Talandi um móðir mína, þá á kjellan sú afmæli í dag. 46 ára gömul meyjan. Nú síðustu ár hef ég verið að átta mig á því að ég og móðir mín verðum líklega saman á elliheimilinu í framtíðinni. Því miðað við hennar lífsstíl og miðað við minn lífsstíl þá er engin undankomuleið frá því.Óákveðinn

 

Fréttirnar í dag einkennast af fjármálum, fjármálamörkuðum, kreppu, seðlabönkum, gjaldmiðlum o.s.frv, o.s.frv. Ég hef tekið þá ákvörðun að skipta um stöð um leið og talað er um þessi mál þar sem maður verður bara þunglyndur og svartsýnn af þessari umræðu. Ég er því nú að horfa á Game TV á Skjá einum í stað Kastljóssins á Rúv.

 

Ég vil benda lesendum á vefsíðu dagsins. En það er vefur Grunnskóla Hornafjarðar. Þar er hægt að sjá fréttir frá skólanum. Frábært starf sem verið er að vinna þar og hafa fréttirnar verið líflegar og skemmtilegar þaðan að undanförnu. Bendi auðvitað sérstaklega á frétt frá 5. bekk S. Það er frábært að vera kennari.SaklausHlæjandi

 

Spurning hvort það er einhver þversögn hjá mér í seinustu færslu og svo þessari heheHlæjandi.

 

Da da da  

 

 

                                                                                                               

Síða 1 af 7

Prófíll

Klukkan